Þreytt á þrætum og baktali

Mischa barton

Mischa barton MARIO ANZUONI

O.C. leikkonan unga Mischa Barton hefur hætt að mæta í Hollywoodpartí. Hún segist vera orðin þreytt á stanslausum þrætum og baktali sem á sér stað í Hollywood.

"Þegar ég kom til Hollywood vissi ég ekkert um þessa vinnu og eignaðist ekki sem bestu vinina. Maður gerir nokkur mistök á þessum aldri og það tók mig tíma að finna vinina sem ég get verið fullkomlega róleg með. Ég vil halda einkalífinu fyrir mig, þú finnur ekki meira en fjóra eða fimm sanna vini í kringum mig. Persónan sem birtist í slúðurblöðunum er ekki ég. Þegar ég sé mig í blöðunum hugsa ég, "Hver er þessi stúlka?" Ég vil láta lítið á mér bera og er yfirleitt róleg en fjölmiðlar hafa skapað falsaðar sögur um ungar Hollywood-persónur þar sem allir hanga saman og allir þekkja alla. En það gæti ekki verið fjær sannleikanum," segir Barton sem lenti í ónáðinni hjá Parísi Hilton eftir að hún sakaði hótelerfingjann um að vera öfundsjúk vegna velgengni annarra.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Fræga fólkið - hægri dálkur — Fleiri fréttir

Phelps snýr aftur til Peking myndskeið

Phelps kemur til Peking á ný
13.1.2009 Sundkappinn Michael Phelps sem vann til átta gullverðlauna á Ólympíuleikunum í Peking í sumar sneri aftur til borgarinnar nýverið. Í þetta skiptið var það ekki til að keppa þó svo hann hafi eytt mestum tíma í sundlauginni. Meira »

Fergie og Duhamel gefin saman

Fergie söng með hljómsveitinni Black Eyed Peas.
11.1.2009 Tónlistarkonan Fergie og leikarinn Josh Duhamel voru gefin saman í Malibu í Kaliforníu í gærdag. Athöfnin þótti ævintýraleg en hún fór fram undir magnólíutrjám sem skreytt voru þúsundum hvítra rósa. Meira »

Sækir um skilnað frá Winehouse

Amy Winehouse
12.1.2009 Blake Fielder-Civil, eiginmaður söngkonunnar Amy Winehouse, hefur sótt um skilnað. Ástæðan er framhjáhald söngkonunnar óstýrilátu. Fielder-Civil og Winehouse gengu í hjónaband árið 2007. Hjónabandið hefur verið stormasamt og Fielder-Civil varði miklum hluta síðasta árs í fangelsi. Meira »

Sopranos-leikari dæmdur í fangelsi

Lillo Brancato
11.1.2009 Leikarinn Lillo Brancato sem er m.a. þekktur fyrir leik sinn í Sopranos-þáttunum var á föstudag dæmdur til 10 ára fangelsisvistar fyrir aðild sína að innbroti inn í íbúð í New York þar sem Brancato og félagi hans ætluðu að stela lyfjum. Lögreglumaður sem reyndi að stöðva innbrotið var skotinn til bana af félaga Brancato. Meira »

finnur.is