Páll Óskar á frægustu slúðursíðu heims

Páll Óskar Hjálmtýsson
Páll Óskar Hjálmtýsson

Eldheitt hommapopp er fyrirsögn umfjöllunar slúðurkóngsins Perez Hilton um nýjasta myndband Páls Óskars Hjálmtýssonar, "Allt fyrir ástina".

Það er ekki ofsögum sagt að slúðursíða bloggarans sem kallar sig Perez sé ein sú vinsælasta í heimi en alls skoða 3,5 milljónir manna síðu hans daglega. Perez er fátt heilagt og hann liggur ekki á skoðunum sínum um menn og málefni í Hollywood.

Fregnir af Björk hafa nokkrum sinnum ratað inn á síðuna í gegnum tíðina en nú er komið að Páli Óskari að vera fulltrúi lands og þjóðar í slúðurgini Perezar. Reyndar fylgir færslunni lítill texti, myndabandið er til sýnis og undir stendur: "Við vitum ekki einu sinni hvað hann er að segja en... Þetta er svo hallærislega fyndið!" Fyrirsögnin er svo Eldheitt hommapopp.

Slær í gegn á YouTube

Um miðjan dag í gær höfðu rúmlega 76 þúsund manns horft á myndband Palla á YouTube.com og eflaust stór hluti þeirra hefur rekist á myndbandið á síðu Perezar. Vel ríflega 100 manns höfðu einnig tjáð sig um myndbandið í gær og kenndi ýmissa grasa í skoðunum fólks.

Tami nokkur segir myndbandið minna á "Oops! I Dit it Again" í flutningi Britney Spears, nema samkynhneigðir menn stígi dans með Palla í stað "hvíta hyskisins" sem tjúttaði með Britney.

Talsvert er fjallað um útlit Páls Óskars og líkindi milli hans og annarra frægra einstaklinga.

Daisy nokkur segir Pál Óskar minna á David Bowie og G segir hann geta verið afkvæmi leikarans Christian Bale og Adam Levine, úr Maroon 5.

Georgina segist hafa vonast til þess að myndbandið endaði á "Just Jack" eins og Jack í sjónvarpsþáttunum Will og Grace hefur gert frægt og annar lesandi hefur orð á hve líkir Jack og Páll Óskar séu.

"Ekkert jafnast á við hallærislegt júrópopp" segir svo UKer en fjölmargir Íslendingar taka upp hanskann fyrir sinn mann og segja Pál Óskar réttilega vera eina skærustu söngstjörnu landsins.

Páll Óskar segist ekkert hafa vitað um málið fyrr en sms-skilaboðum hafi tekið að rigna inn í fyrrakvöld þar sem fólk lofaði framistöðuna á síðu Perezar.

Sjá nánar í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson