Beckham-hjónin vígð inn í Hollywood með formlegum hætti

Stjörnufans. Tom Cruise, Will Smith, Katie Holmes og Jada Pinkett …
Stjörnufans. Tom Cruise, Will Smith, Katie Holmes og Jada Pinkett tóku vel á móti herra og frú Beckham í Los Angeles.

Rauði dregillinn var dreginn fram þegar stjörnurnar í Hollywood buðu David og Viktoríu Beckham velkomin til Los Angeles með formlegum hætti í gær. Leikararnir Tom Cruise og Will Smith voru gestgjafar teitis sem fram fór í Nútímalistasafninu í Los Angeles. Aðeins útvaldir Hollywood-liðar fengu boðskort í veisluna.

Leikstjórinn Ron Howard, leikarinn Bruce Willis og leikkonurnar Brooke Shields og Eva Longoria voru á meðal gesta.

Beckham lék sinn fyrsta leik með knattspyrnufélaginu Los Angeles Galaxy í vináttuleik gegn Chelsea á laugardag.

Tom Cruise, sem vinnur nú að gerð nýrrar kvikmyndar í Þýskalandi, flaug sérstaklega til Bandaríkjanna til þess að verða viðstaddur veisluna.

David og Viktoría sjást hér í kunnuglegum stellingum.
David og Viktoría sjást hér í kunnuglegum stellingum. AP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant