Veröld/Fólk
|
1 Fólk - fréttir
| Morgunblaðið
| 9.8.2007
| 5:30
| Uppfært
8:08
Steinunn Sigurðardóttir hlaut norræn hönnunarverðlaun
Steinunn Sigurðardóttir.
Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður hlaut í gær norrænu hönnunarverðlaunin Ginen. Verðlaunin voru veitt á opnunarhátíð tískuvikunnar í Kaupmannahöfn og var þar haldin tískusýning á fötum Steinunnar, eða öllu heldur fyrirtækis hennar STEiNUNN.
„Það eru yfirleitt tilnefndir fimm eða sex norrænir hönnuðir. Í ár voru það þrír Svíar, einn Íslendingur og tveir Danir. Ég hreppti hnossið," sagði Steinunn í gær, kampakát með verðlaunin.
Þetta er í fyrsta sinn sem Íslendingur hlýtur þessi verðlaun og voru þau veitt í gær fimmta árið í röð.
Steinunn á langan feril að baki við tísku- og fatahönnun, var yfirhönnuður hjá Gucci, Kalvin Klein og La Perla og stofnaði eigið fyrirtæki, STEiNUNNI, fyrir sjö árum. Hún opnaði verslun með sama nafni í þar síðustu viku að Laugavegi 40 í Reykjavík.
Nánar er rætt við Steinunni í Morgunblaðinu í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









