Hleypur um berrössuð

Avril Lavigne

Avril Lavigne MARK BLINCH

Söngstirnið Avril Lavigne hleypur kviknakið um þegar það neytir áfengis.

Já, söngkonan kanadíska viðurkennir nefnilega fúslega að strípiþörf grípi hana þegar hún fær sér nokkra sterka.

"Einu sinni þegar ég drakk viskí," segir stúlkan með viskíröddu, "varð ég svo hávær, að einhver hringdi í lögregluna."'

"Ég á mér skuggahlið og get komið mér í vandræði. Mér finnst gaman að drekka og sletta úr klaufunum og segja það sem mér finnst. En þegar öllu er á botninn hvolft þá er ég gæðablóð, og myndi aldrei skaða neinn af ásettu ráði."

Gaman er að geta þess, að þó svo að stúlkunni finnist gaman að tína af sér spjarirnar í góðra drykkjuvina hópi, þá beitir hún kynþokkanum ekki til þess að selja plötur.

Í hið minnsta ekki enn.

Eða hvað?

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir

Bæði jómfrú og trúlofuð

Noemi Letizia með mynd af ítalska forsætisráðherranum.
12.5.2009 Noemi Letizia, 18 ára gömul stúlka, sem komst í heimsfréttirnar fyrir skömmu þegar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, mætti í afmælið hennar, segist í viðhafnarviðtali í ítalska vikublaðinu Chi, bæði vera hrein mey og trúlofuð. Meira »

Texti í tímans straumi

Hallgrímur Helgason.
12.5.2009 Skáldsagan Rokland, eftir Hallgrím Helgason, er nú komin út á sænsku í þýðingu John Swedenmark. Gagnrýnandi blaðsins Dagens Nyheder fjallar um bókina í dag og fer um hana lofsamlegum orðum. Hann segir jafnframt, að bókin Draumalandið, eftir Andra Snæ Magnason, komi upp í hugann við lestur Roklands: báðar hafi bækurnar komið út í miðju íslenska góðærinu og hafi hvor með sínum hætti spáð fyrir um atburði síðasta hausts. Meira »

Peter Gabriel fær Polarverðlaunin

Peter Gabriel.
12.5.2009 Tilkynnt var í morgun, að tónlistarmennirnir Peter Gabriel og José Antonio Abreu hljóti sænsku Polarverðlaunin í ár. Um er að ræða tónlistarverðlaun, sem Stikkan Andersson stofnaði til árið 1989. Meira »

Trekkarar troðfylltu bíóhúsin

Leikararnir Chris Pine og Zachary Quinto í hlutverkum sínum í nýju Star Trek myndinni.
12.5.2009 Ævintýramyndin Star Trek var langmest sótta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina og jafnframt sú tekjuhæsta. Rétt tæplega 5.000 manns skelltu sér á myndina sem skilaði rúmum 4,5 milljónum í kassann. Meira »

finnur.is