Veröld/Fólk
|
1 Fólk - fréttir
| mbl
| 14.8.2007
| 15:51
Viktoría Beckham leikur feita brúðarmær
Viktoría Beckham. Reuters
Viktoría hefur viðurkennt að það séu ekki beint leikhæfileikar sínir sem hafi leitt til þess að henni bauðst gestahlutverkið.
„Ég á að leika sjálfa mig, og ég verð í frábærum búningi þannig að ég þarf ekki að leika neitt,“ sagði hún.
Viktoría reynir nú hvað hún getur til að vekja á sér athygli vestanhafs, og vonast til að hlutverkið í Ljótu Betty skili árangri í þeirri baráttu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









