Hilton systur vilja 500 þúsund dali fyrir að mæta í teiti

Paris Hilton er dugleg að mæta á rauða dregilinn þegar kvikmyndir eru frumsýndar

Paris Hilton er dugleg að mæta á rauða dregilinn þegar kvikmyndir eru frumsýndar Reuters

Paris Hilton og systir hennar Nicky vilja fá greitt fyrir að láta sjá sig í teiti á gamlárskvöld. Fara þær fram á að fá 500 þúsund dali, tæpar 34 milljónir króna, fyrir viðvikið. Á síðasta ári fékk Paris Hilton 100 þúsund dali fyrir að láta sjá sig í veislunni.

Samkvæmt heimildum dagblaðsins New York Post eru þær systur að þreifa fyrir sér með að fá greitt fyrir að mæta í nokkur gamlárskvöldsteiti en meðal annars hefur næturklúbbur, sem greiddi Paris Hilton 100 þúsund dali í fyrra, áhuga á að fá þær systur til að mæta. Hins vegar segja heimildarmenn NYP að Paris sé svo örvæntingarfull í leit sinni að því að fá góða auglýsingu að hún sé jafnvel reiðubúin til þess að greiða skemmtistöðum fyrir að auglýsa sig sem gest á gamlárskvöld.

Talsmaður þeirra systra neitar þessum fregnum en lét það fylgja með að Paris hafi selt hús sitt í Hollywood á 4,25 milljónir dala, 287 milljónir króna, einungis tíu dögum eftir að það var sett í sölu. Húsið keypti hún fyrir þremur árum á 2,9 milljónir dala. Býr Paris nú í strandhúsi sem hún leigir í Malibu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, Fræga fólkið - hægri dálkur — Fleiri fréttir

Phelps snýr aftur til Peking myndskeið

Phelps kemur til Peking á ný
13.1.2009 Sundkappinn Michael Phelps sem vann til átta gullverðlauna á Ólympíuleikunum í Peking í sumar sneri aftur til borgarinnar nýverið. Í þetta skiptið var það ekki til að keppa þó svo hann hafi eytt mestum tíma í sundlauginni. Meira »

Fergie og Duhamel gefin saman

Fergie söng með hljómsveitinni Black Eyed Peas.
11.1.2009 Tónlistarkonan Fergie og leikarinn Josh Duhamel voru gefin saman í Malibu í Kaliforníu í gærdag. Athöfnin þótti ævintýraleg en hún fór fram undir magnólíutrjám sem skreytt voru þúsundum hvítra rósa. Meira »

Sækir um skilnað frá Winehouse

Amy Winehouse
12.1.2009 Blake Fielder-Civil, eiginmaður söngkonunnar Amy Winehouse, hefur sótt um skilnað. Ástæðan er framhjáhald söngkonunnar óstýrilátu. Fielder-Civil og Winehouse gengu í hjónaband árið 2007. Hjónabandið hefur verið stormasamt og Fielder-Civil varði miklum hluta síðasta árs í fangelsi. Meira »

Sopranos-leikari dæmdur í fangelsi

Lillo Brancato
11.1.2009 Leikarinn Lillo Brancato sem er m.a. þekktur fyrir leik sinn í Sopranos-þáttunum var á föstudag dæmdur til 10 ára fangelsisvistar fyrir aðild sína að innbroti inn í íbúð í New York þar sem Brancato og félagi hans ætluðu að stela lyfjum. Lögreglumaður sem reyndi að stöðva innbrotið var skotinn til bana af félaga Brancato. Meira »

finnur.is