Jessica Biel vill ekki giftast Justin Timberlake

Jessica Biel lék meðal annars í „I Now Pronounce You Chuck and Larry"

Jessica Biel lék meðal annars í „I Now Pronounce You Chuck and Larry" Reuters

Leikkonan Jessica Biel hefur ekki áhuga á því að giftast söngvaranum Justin Timberlake en parið byrjaði saman í febrúar sl. fljótlega eftir að slitnaði upp úr sambandi hans og leikkonunnar Cameron Diaz.

Segir Biel að hjónaband sé ekkert annað en skriffinska og hún sjái ekki tilganginn með því. Þetta kemur fram í viðtali við tímaritið Cosmopolitan. Enda hafi hún ekki áhuga á að gerast ráðsett.

Orðrómur er uppi um að hún og Timberlake ætli að hefja sambúð þegar hann lýkur hljómleikaferð sinni um heiminn í næsta mánuði.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, Fræga fólkið - hægri dálkur — Fleiri fréttir

Phelps snýr aftur til Peking myndskeið

Phelps kemur til Peking á ný
13.1.2009 Sundkappinn Michael Phelps sem vann til átta gullverðlauna á Ólympíuleikunum í Peking í sumar sneri aftur til borgarinnar nýverið. Í þetta skiptið var það ekki til að keppa þó svo hann hafi eytt mestum tíma í sundlauginni. Meira »

Fergie og Duhamel gefin saman

Fergie söng með hljómsveitinni Black Eyed Peas.
11.1.2009 Tónlistarkonan Fergie og leikarinn Josh Duhamel voru gefin saman í Malibu í Kaliforníu í gærdag. Athöfnin þótti ævintýraleg en hún fór fram undir magnólíutrjám sem skreytt voru þúsundum hvítra rósa. Meira »

Sækir um skilnað frá Winehouse

Amy Winehouse
12.1.2009 Blake Fielder-Civil, eiginmaður söngkonunnar Amy Winehouse, hefur sótt um skilnað. Ástæðan er framhjáhald söngkonunnar óstýrilátu. Fielder-Civil og Winehouse gengu í hjónaband árið 2007. Hjónabandið hefur verið stormasamt og Fielder-Civil varði miklum hluta síðasta árs í fangelsi. Meira »

Sopranos-leikari dæmdur í fangelsi

Lillo Brancato
11.1.2009 Leikarinn Lillo Brancato sem er m.a. þekktur fyrir leik sinn í Sopranos-þáttunum var á föstudag dæmdur til 10 ára fangelsisvistar fyrir aðild sína að innbroti inn í íbúð í New York þar sem Brancato og félagi hans ætluðu að stela lyfjum. Lögreglumaður sem reyndi að stöðva innbrotið var skotinn til bana af félaga Brancato. Meira »

finnur.is