Brad og Angelina hafa aldrei sagt „ég elska þig“ við hvort annað

Angelina og Brad, af óprúttnum blaðamönnum stundum nefnd „Brangelina.“
Angelina og Brad, af óprúttnum blaðamönnum stundum nefnd „Brangelina.“ Reuters

Angelina Jolie og Brad Pitt hafa aldrei tjáð hvort öðru ást sína með orðum.

Þau eiga saman fjögur börn, en að sögn Angelinu hafa þau aldrei sagt „ég elska þig“ við hvort annað. Að minnsta kosti segist hún ekki muna til þess.

Hún sagði ennfremur að orðrómur um að þau væru orðin par hefði verið kominn á kreik áður en hún gerði sér sjálf grein fyrir því að hún væri ástfangin af Brad.

Þau kynntust við tökur á myndinni Herra og frú Smith, en þá var Brad enn kvæntur Jennifer Aniston.

Angelina segir að þau hafi skemmt sér konunglega við tökur á myndinni, skotið af byssum og þeyst um á mótorhjóum.

„Það er miklu meira í Brad spunnið en fólk kann að gera sér grein fyrir. Hann er miklu meiri „maður“ en nokkur maður sem ég hef áður kynnst.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant