Sigtryggur Baldursson, betur þekktur sem dægurlagasöngvarinn Bogomil Font, mun á sunnudaginn taka við hlutverki Hr. Rokk í söngleiknum Abbababb!, sem sýndur er í Hafnarfjarðarleikhúsinu. Sigtryggur er þriðji leikarinn sem glímir við hlutverkið, áður hafa Sigurjón Kjartansson og Felix Bergsson tekist á við það. Meðal laga sem Hr. Rokk syngur í söngleiknum eru hið Hr. Rokk og fýlustrákarnir og Ástin er rokk og ról.
Abbababb! eftir Dr. Gunna í leikstjórn Maríu Reyndal er sýnt í Hafnarfjarðarleikhúsinu og hefur að sögn aðstandenda fengið góðar viðtökur.
Verkið hlaut á vordögum Grímuna sem Barnasýning ársins 2007.
Heimasíða Abbababb!