Hald lagt á ljósmynd í eigu Eltons John

Elton John á ljósmynd sem lögreglan athugar hvort brjóti lög …
Elton John á ljósmynd sem lögreglan athugar hvort brjóti lög um barnaklám. Reuters

Breska lögreglan lagði hald á ljósmynd sem er í eigu popparans Eltons John. Myndin sem er eftir ljósmyndarann Nan Goldin heitir Klara And Edda Belly-Dancing og er hluti af einkasafni Eltons John en hluti þess er til sýnis í The Baltic Centre for Contemorary Art í Gateshead í norðaustur Englandi.

Myndin, sem sýnir tvær naktar stúlkur, hefur verið sýnd víða um heim en lögreglan rannsakar nú hvort hún brjóti í bága við lög og geti hugsanlega flokkast undir barnaklám.

Myndin var seld af Sotheby’s uppboðshúsinu í New York 2002 og aftur 2004 og hefur hangið á sýningum í Houston, London, Madrid, New York, Varsjá og víðar án mótmæla sem vitað er um.

Elton John er þekktur fyrir áhuga sinn á ljósmyndun sem listformi og á hann mörg þúsund myndir í safni sínu. Þar á meðal á hann verk eftir Man Ray, Richard Avedon, Irving Penn, Diane Arbus og Ansel Adams.

Lögreglan mun hafa verið boðuð til safnsins af stjórnendum safnsins sem leituðu ráðgjafar vegna myndarinnar áður en sýningin opnaði.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson