Var hreinn sveinn 17 ára

Leonardo DiCaprio og Gisele Bundchen. Þau voru par um tíma.
Leonardo DiCaprio og Gisele Bundchen. Þau voru par um tíma.

Bandaríski leikarinn og hjartaknúsarinn Leonardo DiCaprio var ennþá hreinn sveinn þegar hann var 17 ára gamall, og hafði miklar áhyggjur af því. Þetta segir ástralski leikarinn Russell Crowe sem lék á móti DiCaprio í kvikmyndinni The Quick and the Dead árið 1995.

„Þá var hann bara 17 ára og talaði ekki um annað en að hann væri ennþá hreinn sveinn. Það var mjög fyndið," sagði Crowe í nýlegu viðtali.

Síðan þá hefur DiCaprio meðal annars átt í ástarsambandi við ofurfyrirsæturnar Gisele Bundchen og Bar Rafaeli og Crowe vonar að hann geti bætt fyrir vælið þegar hann var 17 ára og sagt sér krassandi sögur úr rúminu. „Ég vona að við munum einhvern tímann fá góðan tíma svo hann geti sagt mér frá því sem hefur gerst frá því við lékum í þessari mynd saman. Hann getur jafnvel sýnt mér einhverjar ljósmyndir," sagði Crowe, en þeir félagar leika einmitt saman í nýrri kvikmynd Ridleys Scott, Body Of Lies, um þessar mundir.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson