Dunduðu sér við daður á bar í New York

Ashley Olsen
Ashley Olsen Reuters

Leikkonan Ashley Olsen á að hafa daðrað við hjólreiðamanninn Lance Armstrong á bar í New York fyrr í vikunni. Fóru leikar þannig að þau sáust yfirgefa staðinn saman um klukkan tvö um nóttina.

Samkvæmt heimild dagblaðsins New York Post komu þau saman á Rose barinn á Gramercy Park hótelinu á mánudagskvöldið. Vitni sem dagblaðið ræddi við sögðu að þau hafi fyrst spjallað saman en síðan hafi hann hvíslað í eyra hennar og hún svarað að vörmu spori með flissi. Hún á jafnframt að hafa drukkið rauðvín, hjúfrað sig upp að honum og setið í kjöltu kappans sem hætti með söngkonunni Sheryl Crow á síðasta ári. Undanfarið hefur Armstrong verið orðaður við fatahönnuðinn Tory Burch en upp úr sambandinu slitnaði þegar hann vildi ekki flytja til New York.

Armstrong er 36 ára en Olsen er 21. árs. Er þetta ekki í fyrsta skipti sem hún leggur lag sitt við sér eldri menn en þegar hún var nítján sleit hún ástarsambandi við Scott Sartiano sem er þrítugur en þau höfðu verið saman um langt skeið. Einhvern tíma var hún líka orðuð við leikarann Jared Leto sem einnig er kominn á fertugsaldur.

Lance Armstrong
Lance Armstrong AP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant