Britney segist gera allt fyrir börnin sín

Britney Spears.
Britney Spears. Reuters

Poppstjarnan Britney Spears sagði í útvarpsviðtali hjá Ryan Seacrest, sem er þekktastur fyrir að vera kynnirinn í American Idol þáttunum, að hún væri mjög góð móðir og þegar hún varð spurð hvort hún gerði allt fyrir börnin sín svaraði hún: „Ó, guð já.“

Spears á nú í forræðisdeilu við fyrrum eiginmann sinn, Kevin Federline, en saman eiga þau tvo unga drengi.

„Það er sorglegt hve heimurinn getur verið grimmur. Þegar degi hallar þá verður maður bara að vita í hjarta sínu að maður sé að gera það besta sem maður getur,“ sagði hún í viðtalinu.

„Ég reyni að láta þetta ekki hafa áhrif á mig,“ bætti hún við, en með þessu átti hún við þá miklu fjölmiðlaumfjöllun sem verið hefur í gagni í tengslum við hana og forræðisdeiluna.

Federline hefur nú fullt forræði yfir Sean Preston, sem er tveggja ára, og Jayden James, sem er eins árs, en Spears má hinsvegar hitta syni sína undir eftirliti þrisvar sinnum í viku, að því er fram kemur á fréttavef BBC.

Þegar Seacrest spurði Spears hversu oft hún mætti hitta strákana sína virtist söngkonan vera ekki viss í sinni sök.

„Þetta er allt hjá dómstólunum. Hlutir eins og þetta, það vita lögfræðingar mínir allt um.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant