Jude Law mun hugsanlega leika í kvikmynd á Íslandi

Jude Law kemur kannski til Íslands í vor.

Jude Law kemur kannski til Íslands í vor.

Sagt er frá því á fréttavef USA Today að kvikmyndin, Come Like Shadows, sem byggð er á leikritinu Macbeth eftir Shakespeare, verði að  öllum líkindum tekin upp á Íslandi í vor.  Jude Law hefur tekið að sér hlutverk í myndinni ásamt  leikkonunni Tildu Swinton sem lék eftirminnilega í Narniu.

Tilda sagði frá þessu á árlegri hátíð kvenna í Hollywood, þar sem farið var yfir hlutverk kvenna í kvikmyndum í þeirri von að þau verði tilnefnd til Óskarsverðlauna.  Í ár þóttu hlutverk kvenna frekar óbitastæð og voru flestar leikkonur í Hollywood ekki vissar um hverjar yrðu tilnefndar.

Angelina Jolie er sögð hafa staðið sig vel og sýnt afburðaleik í A Mighty Heart og gæti hún verið líkleg til tilnefningar. 

Hlutverk Tildu í Come Like Shadows lofar góðu fyrir næsta ár, og Jodie Foster bindur vonir við hlutverk sitt í ævintýramyndinni, Nim´s Island, sem kemur út 2008. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Fræga fólkið - hægri dálkur — Fleiri fréttir

Phelps snýr aftur til Peking myndskeið

Phelps kemur til Peking á ný
13.1.2009 Sundkappinn Michael Phelps sem vann til átta gullverðlauna á Ólympíuleikunum í Peking í sumar sneri aftur til borgarinnar nýverið. Í þetta skiptið var það ekki til að keppa þó svo hann hafi eytt mestum tíma í sundlauginni. Meira »

Fergie og Duhamel gefin saman

Fergie söng með hljómsveitinni Black Eyed Peas.
11.1.2009 Tónlistarkonan Fergie og leikarinn Josh Duhamel voru gefin saman í Malibu í Kaliforníu í gærdag. Athöfnin þótti ævintýraleg en hún fór fram undir magnólíutrjám sem skreytt voru þúsundum hvítra rósa. Meira »

Sækir um skilnað frá Winehouse

Amy Winehouse
12.1.2009 Blake Fielder-Civil, eiginmaður söngkonunnar Amy Winehouse, hefur sótt um skilnað. Ástæðan er framhjáhald söngkonunnar óstýrilátu. Fielder-Civil og Winehouse gengu í hjónaband árið 2007. Hjónabandið hefur verið stormasamt og Fielder-Civil varði miklum hluta síðasta árs í fangelsi. Meira »

Sopranos-leikari dæmdur í fangelsi

Lillo Brancato
11.1.2009 Leikarinn Lillo Brancato sem er m.a. þekktur fyrir leik sinn í Sopranos-þáttunum var á föstudag dæmdur til 10 ára fangelsisvistar fyrir aðild sína að innbroti inn í íbúð í New York þar sem Brancato og félagi hans ætluðu að stela lyfjum. Lögreglumaður sem reyndi að stöðva innbrotið var skotinn til bana af félaga Brancato. Meira »

finnur.is