Írsk fyrirsæta lætur lífið

Írska fyrirsætan Katy French lét lífið á sjúkrahúsi í heimalandi sínu síðastliðinn fimmtudag.  Fréttavefur Sky News segir frá því að farið var með Katy á sjúkrahús eftir að hún hneig niður á heimili vina sinna. 

Lögreglan rannsakar nú hvernig andlát hennar bar að og hvort eitthvað grunsamlegt eða glæpsamlegt hafi átt sér stað.  Orðrómur er um að hún hafi látist af of stórum skammti fíkniefna en hún viðurkenndi nýlega að hafa misnotað kókaín. Fíkniefnalögreglan rannsakar einnig málið, sem hefur ýtt enn frekar undir þær getgátur. 

Krufning hefur farið fram en niðurstaða um ástæður andláts Katy hafa ekki verið gefnar upp.  Katy var mjög vinsæl í heimalandi sínu og var aðeins 24 ára gömul þegar hún lést.

  • Til baka
  • Senda

Veröld/Fólk, Fræga fólkið - hægri dálkur — Fleiri fréttir

Phelps snýr aftur til Peking myndskeið

Phelps kemur til Peking á ný
13.1.2009 Sundkappinn Michael Phelps sem vann til átta gullverðlauna á Ólympíuleikunum í Peking í sumar sneri aftur til borgarinnar nýverið. Í þetta skiptið var það ekki til að keppa þó svo hann hafi eytt mestum tíma í sundlauginni. Meira »

Fergie og Duhamel gefin saman

Fergie söng með hljómsveitinni Black Eyed Peas.
11.1.2009 Tónlistarkonan Fergie og leikarinn Josh Duhamel voru gefin saman í Malibu í Kaliforníu í gærdag. Athöfnin þótti ævintýraleg en hún fór fram undir magnólíutrjám sem skreytt voru þúsundum hvítra rósa. Meira »

Sækir um skilnað frá Winehouse

Amy Winehouse
12.1.2009 Blake Fielder-Civil, eiginmaður söngkonunnar Amy Winehouse, hefur sótt um skilnað. Ástæðan er framhjáhald söngkonunnar óstýrilátu. Fielder-Civil og Winehouse gengu í hjónaband árið 2007. Hjónabandið hefur verið stormasamt og Fielder-Civil varði miklum hluta síðasta árs í fangelsi. Meira »

Sopranos-leikari dæmdur í fangelsi

Lillo Brancato
11.1.2009 Leikarinn Lillo Brancato sem er m.a. þekktur fyrir leik sinn í Sopranos-þáttunum var á föstudag dæmdur til 10 ára fangelsisvistar fyrir aðild sína að innbroti inn í íbúð í New York þar sem Brancato og félagi hans ætluðu að stela lyfjum. Lögreglumaður sem reyndi að stöðva innbrotið var skotinn til bana af félaga Brancato. Meira »

finnur.is