Flottasti söngvari rokksögunnar

Robert Plant var í góðu formi á tónleikum Led Zeppelin í gær. stækka

Robert Plant var í góðu formi á tónleikum Led Zeppelin í gær. AP

„Þetta var algjör snilld," sagði Ólafur Páll Gunnarsson, umsjónarmaður Rokklands á Rás 2 sem var á tónleikum Led Zeppelin í  London í gær.   Ólafur sagði tónleikana hafa verið stórkostlega upplifun. 

„Þetta var algjör snilld“ sagði Ólafur.  „Led Zeppelin tóku mörg af sínum þekktustu lögum og byrjuðu á Good times Bad times, en tóku svo meðal annars Ramble on, Black Dog, Dazed and Confused og Stairway to Heaven, þetta voru svona „greatest hits" tónleikar," sagði Ólafur.

Aðspurður um andrúmsloftið í salnum þegar félagarnir í Led Zeppelin stigu á svið segir Ólafur þakið hafa ætlað að rifna af húsinu, stemmningin hafi verið frábær enda eftirvæntingin mikil. 

„Þetta er svo stór viðburður í rokksögunni, þetta voru engir venjulegir tónleikar.  Led Zeppelin sýndi það svo sannarlega að þeir voru fullfærir um að flytja þetta. Þeir voru i rosa fínu formi, það kom mér á óvart hvað Robert Plant gat skilað þessu vel, enda engin smá áreynsla á röddina; hann er bara flottasti söngvarinn rokksögunnar," sagði Ólafur. 

Led Zeppelin  hætti 1980 eftir að John Bonham, trommuleikari, lést.  Robert Plant, Jimmy Page, John Paul Jones og Jason Bonham, sonur Johns,spiluðu í 2 tíma og 10 mínútur fyrir um 20.000 manns í O2 Arena tónleikahöllinni í London í gærkvöldi.

Eftir vel heppnaða tónleika rokkgoðsagnanna í gær er það á flestra vörum að Led Zeppelin verði að fara í tónleikaferðalag, svo fleiri geti upplifað flutning þeirra á klassískum lögum úr rokksögunni.  

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir

Bæði jómfrú og trúlofuð

Noemi Letizia með mynd af ítalska forsætisráðherranum.
12.5.2009 Noemi Letizia, 18 ára gömul stúlka, sem komst í heimsfréttirnar fyrir skömmu þegar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, mætti í afmælið hennar, segist í viðhafnarviðtali í ítalska vikublaðinu Chi, bæði vera hrein mey og trúlofuð. Meira »

Texti í tímans straumi

Hallgrímur Helgason.
12.5.2009 Skáldsagan Rokland, eftir Hallgrím Helgason, er nú komin út á sænsku í þýðingu John Swedenmark. Gagnrýnandi blaðsins Dagens Nyheder fjallar um bókina í dag og fer um hana lofsamlegum orðum. Hann segir jafnframt, að bókin Draumalandið, eftir Andra Snæ Magnason, komi upp í hugann við lestur Roklands: báðar hafi bækurnar komið út í miðju íslenska góðærinu og hafi hvor með sínum hætti spáð fyrir um atburði síðasta hausts. Meira »

Peter Gabriel fær Polarverðlaunin

Peter Gabriel.
12.5.2009 Tilkynnt var í morgun, að tónlistarmennirnir Peter Gabriel og José Antonio Abreu hljóti sænsku Polarverðlaunin í ár. Um er að ræða tónlistarverðlaun, sem Stikkan Andersson stofnaði til árið 1989. Meira »

Trekkarar troðfylltu bíóhúsin

Leikararnir Chris Pine og Zachary Quinto í hlutverkum sínum í nýju Star Trek myndinni.
12.5.2009 Ævintýramyndin Star Trek var langmest sótta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina og jafnframt sú tekjuhæsta. Rétt tæplega 5.000 manns skelltu sér á myndina sem skilaði rúmum 4,5 milljónum í kassann. Meira »

finnur.is