Lítill árangur í verkfalli handritshöfunda
Samningsviðræður milli handritshöfunda og framleiðenda í Hollywood hafa borið lítinn árangur. Verkfall handritshöfunda hófst 5. nóvember síðastliðinn og hefur nú staðið í 5 vikur.
Vaxandi deilur hafa leitt til þess að framleiðslu á mörgum vinsælum sjónvarpsþáttum hefur verið hætt og framleiðslu kvikmynda verið frestað. Verkfallið snýst um launakröfur og hagnaðarhlutdeild, en handritshöfundar vilja fá greitt meira fyrir vinnu sína þegar hún er gefin út á DVD eða á netinu.
Horfurnar eru sem stendur ekki góðar þar sem aðilar í deilunni eru ósammála og kenna hvor öðrum um skort á framför í málinu.
Sagt er frá því á fréttavef BBC að samtök framleiðenda, Alliance of Motion Picture and Television Producers, telji árangursleysið vera vegna viðvarandi stefnu samtaka handritshöfunda til að fresta eða setja viðræður út af sporinu.
Á móti sakaði Writers Guild of America framleiðendur um að draga málið á langinn með því að koma sífellt með nýjar uppástungur. Alliance hafnaði þessu og segir samtök handritshöfunda ekki svara tilboðum framleiðenda.
Stjórnendur sjónvarpstöðva eru farnir að finna fyrir áhrifum verkfallsins þar sem búið er að senda út þegar upptekið efni af þáttum eins og Grey´s Anatomy, Desperate Housewives, og The Office. Búa stjórnendur sig nú undir að endursýna þætti og sýna raunveruleikaþætti í meira magni, ef ekki verður búið að leysa deiluna á nýju ári.
Starfsmenn í afþreyingariðnaðinum hafa einnig fundið fyrir áhrifum verkfallsins. Hundruð starfsmanna í sjónvarps- og kvikmyndageiranum fóru í kröfugöngu um helgina og kröfðust þess að verkfallinu ljúki og að deilumál verði leyst.









