Fannst Birgitta Haukdal of gul

Litarhaft söngkonunnar Birgittu Haukdal í Laugardagslögunum varð bloggaranum Jens Kr. Guðmundssyni að hugðarefni, en hann fann mjög að brúnkukremi hennar og sagði húðlit söngkonunnar vera „kjánalega gulan" á bloggi sínu.

Víst er að þetta hefur verið mikil lífsreynsla fyrir Jens, því hann tekur einnig fram að það hafi verið „hræðilegt að sjá þetta".

Í kjölfar bloggsins sá Birgitta sér leik á borði og sendi jólakort til Jens þar sem stóð: „Elsku Jens Guð. Ég óska þér gleðilegra jóla og vona að þú hafir það yndislegt. Þín Birgitta H. P.S. Töfrakremið heitir Beautiful 4 ever."

Birgitta segist þó ekki hafa séð bloggið að fyrra bragði. „Tvær frænkur mínar voru í skrautskriftarnámskeiði hjá honum og höfðu séð þetta og fóru að ræða þetta við hann. Mér fannst þetta svo fyndið að ég skrifaði jólakort til hans sem þær komu til skila. En ég get alveg viðurkennt að ég notast stundum við svona krem þegar mikið stendur til, en annars er ég meðfrekar dökka húð fyrir, þannig að ég þarf mjög lítið ef mér finnst ég vera einstaklega föl!"

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir

Bæði jómfrú og trúlofuð

Noemi Letizia með mynd af ítalska forsætisráðherranum.
12.5.2009 Noemi Letizia, 18 ára gömul stúlka, sem komst í heimsfréttirnar fyrir skömmu þegar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, mætti í afmælið hennar, segist í viðhafnarviðtali í ítalska vikublaðinu Chi, bæði vera hrein mey og trúlofuð. Meira »

Texti í tímans straumi

Hallgrímur Helgason.
12.5.2009 Skáldsagan Rokland, eftir Hallgrím Helgason, er nú komin út á sænsku í þýðingu John Swedenmark. Gagnrýnandi blaðsins Dagens Nyheder fjallar um bókina í dag og fer um hana lofsamlegum orðum. Hann segir jafnframt, að bókin Draumalandið, eftir Andra Snæ Magnason, komi upp í hugann við lestur Roklands: báðar hafi bækurnar komið út í miðju íslenska góðærinu og hafi hvor með sínum hætti spáð fyrir um atburði síðasta hausts. Meira »

Peter Gabriel fær Polarverðlaunin

Peter Gabriel.
12.5.2009 Tilkynnt var í morgun, að tónlistarmennirnir Peter Gabriel og José Antonio Abreu hljóti sænsku Polarverðlaunin í ár. Um er að ræða tónlistarverðlaun, sem Stikkan Andersson stofnaði til árið 1989. Meira »

Trekkarar troðfylltu bíóhúsin

Leikararnir Chris Pine og Zachary Quinto í hlutverkum sínum í nýju Star Trek myndinni.
12.5.2009 Ævintýramyndin Star Trek var langmest sótta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina og jafnframt sú tekjuhæsta. Rétt tæplega 5.000 manns skelltu sér á myndina sem skilaði rúmum 4,5 milljónum í kassann. Meira »

finnur.is