Veröld/Fólk
|
Fræga fólkið - hægri dálkur
| mbl
| 14.12.2007
| 16:20
Ævintýri J.K Rowling seldist á 250 milljónir króna
Handskrifað ævintýri sem nefnist The Tales of Beedle the Bard eftir J.K Rowling seldist á rúmar 250 milljónir króna á uppboðshúsi Sotheby´s í gær.
Búist var við að 6 milljónir fengjust fyrir bókina en kaupandinn var netverslunin Amazon.com.
Allur ágóði sölunnar mun renna til góðgerðasamtaka sem J.K Rowling stofnaði sjálf í þágu nauðstaddra barna.
Samkvæmt fréttastofu Reuters hefur einungis eitt þessara ævintýra birst á prenti en alls voru gerðar sjö handskrifaðar bækur en Rowling hefur gefið hinar sex.
Bókin er bundin í leður og skreytt með glitrandi steinum. Í bókinni eru fimm handskrifuð ævintýri sem nefnd eru í síðustu bók Rowling um Harry Potter.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









