Britney á biðilsbuxunum

Britney í Los Angeles 1. des.
Britney í Los Angeles 1. des. AP

Fregnir herma að Britney Spears ætli að giftast aðstoðarmanni sínum í Las Vegas, Sam Lufti, og hafi þegar sagt Kevin Federline og lögmönnum sínum frá þessum fyrirætlunum. Mun Kevin vera vægast sagt ósáttur fyrir þetta, þar sem hann vill alls ekki að Lufti verði stjúpfaðir sona sinna.

Þetta verður þá ekki í fyrsta sinn sem Britney giftist í Las Vegas. Frægt varð þegar hún og æskuvinur hennar, Jason Alexander, gengu í það heilaga þar í borg, hjónaband sem entist í 55 klukkustundir.

Heimildamaður segir að Britney sé alveg heilluð af Sam Lufti. En allir aðrir sjái í gegnum hann. „Mér skilst að hann sé alltaf með henni og að hún borgi allan mat ofan í hann, áfengi og veitingahúsaferðir og fötin utan á hann. Hún sér honum fyrir öllu. Lögmennirnir hennar hafa beðið hana að gera að minnsta kosti kaupmála, en hún hlustar ekki á þá.“

Fjölskylduvinur tjáði tímaritinu Star: „Kevin hefur séð þegar Sam reiðist. Okkur er sagt að Sam bölvi mikið og segi margt niðrandi þegar hann er einn með Brit. Kevin er búinn að banna Britneyju að vera með Sam þegar drengirnir eru nærri. Kevin hefur meira að segja hótað að fá nálgunarbann. Hann mun sjá til þess að Britney missi allt forræði ef hún leyfir Sam að koma nálægt þeim.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler