Veröld/Fólk
|
Fræga fólkið - hægri dálkur
| mbl
| 18.12.2007
| 15:00
Johnny Depp vinsælastur hjá áritanasöfnurum
Johnny Depp er vinsæll á meðal safnara eiginhandaráritana. AP
Leikarinn Johnny Depp hefur verið kosinn vinsælastur af söfnurum eiginhandaráritana.
Leikarinn er efstur á listanum þriðja árið í röð en kosningin var á vegum tímaritsins Autograph Magazine. Depp er sagður vinalegur og að hann gefi sér tíma til að tala við aðdáendur sína.
Matt Damon hreppti annað sætið á listanum yfir vinsælustu en George Clooney, Jack Nicholson, og Jay Leno komust einnig á vinsældalistann hjá söfnurum eiginhandaráritana.Leikarinn Will Ferrell var kosinn óvinsælastur á meðal safnaranna.
Ferrell er sagður geðillur og óviljugur við að gefa áritanir, en hafi áður fyrr verið mun vinalegri við aðdáendur og safnara.
Tobey Maguire, Renee Zellweger, Bruce Willis, og Scarlett Johansson komust einnig á óvinsældalistann hjá söfnurum áritana.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









