Perez Hilton efstur á lista yfir stjörnur á netinu
3,5 milljónir manna lesa slúður Perez á hverjum degi. Hér sést Perez á milli systranna Nicky og Parisar Hilton. mbl
Umdeildi slúðurbloggarinn Perez Hilton er efstur á lista Forbes.com yfir vef-stjörnur ársins 2007. Listinn tekur saman persónur sem hafa orðið frægar á netinu fyrir vefsíður sínar.
Perez Hilton, sem heitir Mario Lavandeira, er með vinsæla bloggsíðu þar sem hann slúðrar um fræga fólkið og er honum fátt heilagt þegar kemur að skoðunum um stjörnurnar.
Perez á dyggan hóp aðdáenda sem les bloggið hans daglega, en hann er oft fyrstu með fréttirnar af fræga fólkinu.
Eftir að Perez varð frægur á netinu hefur hann komið fram í bandarísku sjónvarpi við miklar vinsældir, í spjallþættinum The View, og í sínum eigin þætti á tónlistarstöðinni VH1.
Í öðru sæti og þriðja sæti voru tækni-bloggararnir Michael Arrington og Mark Frauenfelder.
Hér má sjá listann yfir vefsstjörnur ársins 2007.









