Timo Maas segir gott að skreppa til Íslands

Timo Maas leikur fyrir Íslendinga á Nasa í kvöld. stækka

Timo Maas leikur fyrir Íslendinga á Nasa í kvöld.

Timo Maas kemur fram á Nasa í kvöld. Hann heldur nú sína þriðju tónleika á Íslandi og það hlýtur að teljast fréttnæmt þegar einn virtasti plötusnúður og teknótónlistarmaður heims er orðinn fastagestur hér á landi. Timo hefur komið fram með Depeche Mode og Muse og gert tónlist með stjörnum eins og Jamiroquai, Placebo og Madonnu.

„Ég ætti náttúrlega að koma miklu oftar en ég geri, því ég hreinlega elska Ísland. Það er alltaf brjáluð stemning hjá ykkur og fullt af fallegum stelpum, sem skemmir ekki fyrir. Íslendingar eru líka aðeins frábrugðnir hinum Evrópuþjóðunum og ég meina það á mjög jákvæðan hátt," segir Timo Maas og sötrar cappuccino-ið sitt í morgunsárið.

„Það er líka mjög gaman að skreppa til Íslands svona rétt fyrir jól." Timo er mjög hrifinn af íslenskum lakkrís, og ætlar að kaupa svolítið af honum til að gefa vinum og vandamönnum í Þýskalandi.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir

Bæði jómfrú og trúlofuð

Noemi Letizia með mynd af ítalska forsætisráðherranum.
12.5.2009 Noemi Letizia, 18 ára gömul stúlka, sem komst í heimsfréttirnar fyrir skömmu þegar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, mætti í afmælið hennar, segist í viðhafnarviðtali í ítalska vikublaðinu Chi, bæði vera hrein mey og trúlofuð. Meira »

Texti í tímans straumi

Hallgrímur Helgason.
12.5.2009 Skáldsagan Rokland, eftir Hallgrím Helgason, er nú komin út á sænsku í þýðingu John Swedenmark. Gagnrýnandi blaðsins Dagens Nyheder fjallar um bókina í dag og fer um hana lofsamlegum orðum. Hann segir jafnframt, að bókin Draumalandið, eftir Andra Snæ Magnason, komi upp í hugann við lestur Roklands: báðar hafi bækurnar komið út í miðju íslenska góðærinu og hafi hvor með sínum hætti spáð fyrir um atburði síðasta hausts. Meira »

Peter Gabriel fær Polarverðlaunin

Peter Gabriel.
12.5.2009 Tilkynnt var í morgun, að tónlistarmennirnir Peter Gabriel og José Antonio Abreu hljóti sænsku Polarverðlaunin í ár. Um er að ræða tónlistarverðlaun, sem Stikkan Andersson stofnaði til árið 1989. Meira »

Trekkarar troðfylltu bíóhúsin

Leikararnir Chris Pine og Zachary Quinto í hlutverkum sínum í nýju Star Trek myndinni.
12.5.2009 Ævintýramyndin Star Trek var langmest sótta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina og jafnframt sú tekjuhæsta. Rétt tæplega 5.000 manns skelltu sér á myndina sem skilaði rúmum 4,5 milljónum í kassann. Meira »

finnur.is