Veröld/Fólk
|
Fræga fólkið - hægri dálkur
| AP
| 27.12.2007
| 16:39
Bette Davis á frímerki
Bandaríska póstþjónustan mun heiðra kvikmyndaleikkonuna Bette Davis með frímerki.
Gefið verður út frímerki með mynd af henni 2008 í tilefni þess að 100 ár eru liðin frá fæðingu hennar.
Verður frímerkið það fjórtánda í frímerkjaseríu af Hollywoodstjörnum.
Bette Davis var tilnefnd til Óskarsverðlauna 10 sinnum en vann tvisvar fyrir hlutverk sín í Dangerous (1935) og Jezebel (1938).
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









