Veröld/Fólk
|
Fræga fólkið - hægri dálkur
| mbl
| 3.1.2008
| 10:07
Janet vill endurkomu Jackson Five
Janet Jackson óskar þess að bræður sínir komi aftur fram sem Jackson Five, því hún er mesti aðdáandi þeirra.
Janet vill sjá bræðurna Tito, Marlon, Jackie, Jermaine, og Michael fara í í tónleikaferðalag um heiminn og telur hún að þeir eigi ennþá fullt eftir tónlistarlega séð.
“Ég veit ekki hvort verður af tónleikaferð, ég vona það, en ég veit að þeirra er mikið saknað, og það er mikil tónlistarsaga á bak við Jackson Five,” segir Janet.
Janet segir Rolling Stones veita bræðrum sínum hvatningu þar sem þeir haldi enn tónleika, þrátt fyrir að vera flestir komnir yfir sextugt.
Síðasta tónleikaferðalag Jackson Five var 1984.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









