Coen bræður fá verðlaun gagnrýnenda

Spænski leikarinn Javier Bardem fékk verðlaun fyrir leik sinn í kvikmyndinni No Country for Old ... stækka

Spænski leikarinn Javier Bardem fékk verðlaun fyrir leik sinn í kvikmyndinni No Country for Old Men. FRED PROUSER

Kvikmyndin No Country for Old Men fékk flest verðlaun á verðlaunahátíð gagnrýnenda, Critics´Choice Awards, í Hollywood. 

Coen bræður fengu verðlaun fyrir bestu leikstjórn og bestu mynd og spænski leikarinn Javier Bardem fékk verðlaun fyrir besta leik í auka-hlutverki. 

Jonny Greenwood, gítarleikari Radiohead, fékk verðlaun fyrir tónlistina í kvikmynd Paul Thomas Anderson, There will be Blood, og aðalleikari myndarinnar Daniel Day-Lewis fékk verðlaun fyrir besta leik í aðalhlutverki. 

Sean Penn var tilnefndur til sjö verðlauna fyrir Into the Wild en fór heim tómhentur.

Verðlaunin eru send út af samtökum kvikmyndagagnrýnenda en þau eru ekki bundin samningum við samtök handritshöfunda sem enn eru í verkfalli.

Ýmsar stjörnur mættu ekki á hátíðina, hugsanlega til þess að styðja við baráttu handritshöfunda. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Fræga fólkið - hægri dálkur — Fleiri fréttir

Phelps snýr aftur til Peking myndskeið

Phelps kemur til Peking á ný
13.1.2009 Sundkappinn Michael Phelps sem vann til átta gullverðlauna á Ólympíuleikunum í Peking í sumar sneri aftur til borgarinnar nýverið. Í þetta skiptið var það ekki til að keppa þó svo hann hafi eytt mestum tíma í sundlauginni. Meira »

Fergie og Duhamel gefin saman

Fergie söng með hljómsveitinni Black Eyed Peas.
11.1.2009 Tónlistarkonan Fergie og leikarinn Josh Duhamel voru gefin saman í Malibu í Kaliforníu í gærdag. Athöfnin þótti ævintýraleg en hún fór fram undir magnólíutrjám sem skreytt voru þúsundum hvítra rósa. Meira »

Sækir um skilnað frá Winehouse

Amy Winehouse
12.1.2009 Blake Fielder-Civil, eiginmaður söngkonunnar Amy Winehouse, hefur sótt um skilnað. Ástæðan er framhjáhald söngkonunnar óstýrilátu. Fielder-Civil og Winehouse gengu í hjónaband árið 2007. Hjónabandið hefur verið stormasamt og Fielder-Civil varði miklum hluta síðasta árs í fangelsi. Meira »

Sopranos-leikari dæmdur í fangelsi

Lillo Brancato
11.1.2009 Leikarinn Lillo Brancato sem er m.a. þekktur fyrir leik sinn í Sopranos-þáttunum var á föstudag dæmdur til 10 ára fangelsisvistar fyrir aðild sína að innbroti inn í íbúð í New York þar sem Brancato og félagi hans ætluðu að stela lyfjum. Lögreglumaður sem reyndi að stöðva innbrotið var skotinn til bana af félaga Brancato. Meira »

finnur.is