Dr. Phil hættir við þátt um Britney

Bandaríski sjónvarpssálfræðingurinn Phil McGraw
Bandaríski sjónvarpssálfræðingurinn Phil McGraw AP

Bandaríski sjónvarpssálfræðingurinn Dr. Phil hefur aflýst fyrirhuguðum þætti sínum um vandamál söngkonunnar Britney Spears. Til hafði staðið að Dr. Phil, sem er vinur foreldra Spears sýndi hluta úr viðtali sem hann átti við hana á Cedars-Sinai sjúkrahúsinu um helgina, í þættinum.

Dr. Phil féll hins vegar frá áformum sínum fyrir beiðni Jamie, föður Spears. „Við höfðum ætlað okkur að fjalla um málið í 'Dr. Phil Now' þættinum. Ekki með áherslu á slúðurhliðina heldur alvarleika þessa máls,” segir í yfirlýsingu hans. „Það sem málefni Spears eru mjög viðkvæm eins og stendur og af tillitssemi við fjölskylduna hef ég hins vegar fallið frá því að gera þáttinn."

Dr. Phil ávarpar þó söngkonuna í myndbandi sem birt er á vefsíðunni ETonline.com. „Þú getur lagað hlutina. Fjölskylda þín elskar þig. Þú ert ekki alltaf sammála því sem þau segja eða gera en þau hafa elskað þig jafnvel þegar þú hefur ekki verið sem elskulegust. Snúðu þér til þeirra sem elska þig og hlustaðu,” segir hann. „Þú átt tvö börn og það er þitt hlutverk hér í þessum heimi að vernda þau. Það er ekki til sú fórn sem móðir þín Lynne myndi ekki færa fyrir þig og það er ekki til nokkur fórn sem faðir þinn myndi ekki færa. Þau eru fólkið sem vill ekkert frá þér en allt fyrir þig gera.”

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler