Madonna heimsækir fátækrahverfi í Mumbaí
Madonna heimsótti fjölmennt fátækrahverfi í indversku borginni Mumbaí, þar sem íbúar hverfisins létu rigna yfir hana rósa-og morgunfrúarblöðum.
Madonna eyddi um 45 mínútum með íbúum hverfisins sem gáfu henni heimagerðar hálsfestar. Hún var í fríi á Indlandi ásamt fjölskyldu sinni, en þau eyddu áramótunum í eyðimerkurhéraðinu Rajasthan.
Milljónir manna búa í kofum byggðum til bráðabirgða í fátækrahverfum Mumbaí.
Ástralski rithöfundurinn Gregory David Roberts fór með Madonnu og eiginmanni hennar Guy Ritchie um hverfið en Gregory hefur búið í hverfinu síðan á níunda áratugnum.
Gregory gerði fátækrahverfið að athvarfi sínu eftir að hann slapp úr fangelsi í Ástralíu. Hann hefur unnið með yfirvöldum Mumbaí og reisti þar heilsugæslustöð.
Fátækrahverfi þetta er sögusvið í Shantaram, metsölubók Roberts. Kvikmynd byggð á bókinni er nú vinnslu en Johnny Depp mun leika aðalhlutverkið og verður henni leikstýrt af indverska leikstjóranum Mira Nair.









