Meðlimur Sugababes handtekin fyrir eignaspjöll
Sugababes komu fram í Laugardalshöll 2004. mbl.is
Amelle Berrabah söngkona í Sugababes var handtekin í gær fyrir að eyðileggja bíl í eigu annarrar konu. Amelle var látin laus gegn tryggingu.
Söngkonan var handtekin eftir að deilur við nágranna systur hennar fóru úr böndunum.
Atburðurinn átti sér stað í Aldershot, Hampshire á Englandi og er Amelle sökuð um að hafa valdið eignatjóni og fyrir að vera með óspekktir á almannafæri.
Staða Amelle innan Sugababes er sögð vera í hættu þar sem þessi atburður sé aðeins það nýjasta í röð umdeildra uppákoma.
Um jólin var lenti kærasti Amelle í slagsmálum og ráðist var á hann með sveðju. Einnig var hann sakaður um að hafa nauðgað yngri systur Amelle, en hann var hreinsaður af þeim ásökunum.









