Michelle Rodriguez sleppt fyrr úr fangelsi

Michelle Rodriguez er laus úr fangelsi eftir að hafa afplánað 17 daga af 6 mánaða ...

Michelle Rodriguez er laus úr fangelsi eftir að hafa afplánað 17 daga af 6 mánaða dómi. MARIO ANZUONI

Leikkonunni Michelle Rodriguez hefur verið sleppt úr fangelsi eftir 17 daga vist en hún var dæmd til sex mánaða afplánunar fyrir skilorðsbrot.

Sagt er frá því á fréttavef Reuters að leikkonan, sem lék í Lost þáttunum, hóf afplánun sína þann 23.desember síðastliðinn.   

Hún var dæmd í sex mánaða fangelsi fyrir að virða ekki skilorðsbundinn dóm sem hún hlaut fyrir ölvunarakstur fyrir nokkru síðan.

Þann 10. október síðastliðinn var hún svo fundin sek um að brjóta skilorð, meðal annars með því að neyta áfengis eftir að dómari hafði bannað henni það.

Rodriguez hefur haft heppnina með sér hvað varðar refsikerfið í Los Angeles.  Hún var dæmd í fangelsi í 60 daga fyrir skilorðsbrot í maí 2006 en var laus eftir aðeins fjóra klukkutíma og 20 mínútur.

Fleiri stjörnur á borð við Lindsay Lohan, Nicole Ritchie og Paris Hilton afplánuðu aðeins brot af dómum sínum í fyrra, sem hefur vakið upp spurningar um sérmeðferð Hollywood stjarna. 

Kiefer Sutherland hóf hins vegar 48 daga afplánun sína þann 5. desember síðastliðinn fyrir ölvunarakstur og búist er við að hann afpláni hana að fullu.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Fræga fólkið - hægri dálkur — Fleiri fréttir

Phelps snýr aftur til Peking myndskeið

Phelps kemur til Peking á ný
13.1.2009 Sundkappinn Michael Phelps sem vann til átta gullverðlauna á Ólympíuleikunum í Peking í sumar sneri aftur til borgarinnar nýverið. Í þetta skiptið var það ekki til að keppa þó svo hann hafi eytt mestum tíma í sundlauginni. Meira »

Fergie og Duhamel gefin saman

Fergie söng með hljómsveitinni Black Eyed Peas.
11.1.2009 Tónlistarkonan Fergie og leikarinn Josh Duhamel voru gefin saman í Malibu í Kaliforníu í gærdag. Athöfnin þótti ævintýraleg en hún fór fram undir magnólíutrjám sem skreytt voru þúsundum hvítra rósa. Meira »

Sækir um skilnað frá Winehouse

Amy Winehouse
12.1.2009 Blake Fielder-Civil, eiginmaður söngkonunnar Amy Winehouse, hefur sótt um skilnað. Ástæðan er framhjáhald söngkonunnar óstýrilátu. Fielder-Civil og Winehouse gengu í hjónaband árið 2007. Hjónabandið hefur verið stormasamt og Fielder-Civil varði miklum hluta síðasta árs í fangelsi. Meira »

Sopranos-leikari dæmdur í fangelsi

Lillo Brancato
11.1.2009 Leikarinn Lillo Brancato sem er m.a. þekktur fyrir leik sinn í Sopranos-þáttunum var á föstudag dæmdur til 10 ára fangelsisvistar fyrir aðild sína að innbroti inn í íbúð í New York þar sem Brancato og félagi hans ætluðu að stela lyfjum. Lögreglumaður sem reyndi að stöðva innbrotið var skotinn til bana af félaga Brancato. Meira »

finnur.is