Brjálað teiti í Ástralíu
Ástralskur unglingspiltur á yfir höfði sér háar sektargreiðslur eftir að veisluhöld helgarinnar fóru úr böndunum. Yfir 500 manns mættu í teiti hjá piltinum í Melbourne í Ástralíu á laugardagskvöldið en foreldrarnir voru að heiman.
Ekki urðu allir veislugestirnir ánægðir þegar lögregla mætti á svæðið til þess að stöðva veisluhaldið vegna kvartana frá nágrönnum og bókstaflega gengu af göflunum. Réðust ungmennin á lögreglubifreiðar vopnaðir glösum og flöskum. Eins urðu hús í nágrenninu og garðar fyrir barðinu á æfum ungmennum. Ekki tókst að stilla til friðar fyrr en yfir 30 lögregluþjónar, lögregluhundasveit og þyrlur tóku þátt í aðgerðunum.
Þrátt fyrir ólætin handtók lögregla enga en að sögn lögreglunnar er erfitt að meta tjónið, talið er að það nemi um 20 þúsund áströlskum dölum, sem svarar til 1,1 milljón króna. Telur lögreglan að pilturinn sem efndi til veisluhaldanna verði látinn bera ábyrgð á tjóninu og greiða skaðabætur enda þurfi hann að læra sína lexíu, að sögn lögreglustjórans í Melborune.
Pilturinn, sem er 16 ára, sagði við fjölmiðla að hann sæi ekki eftir neinu þar sem hann hann teldi að þeir sem hafi verið boðnir í veisluna hafi ekki gert neinn óskunda, heldur þeir óboðnu. Spurður að því hvort hann myndi endurtaka leikinn sagði hann að það væri engin spurning þar um ef foreldrar hans væru ekki væntanlegir heim í vikunni.
Að sögn lögreglunnar komu foreldrarnir af fjöllum þegar lögregla hafði samband við þau en pilturinn hafði ekki heimild frá þeim til þess að halda veislu á meðan þau voru í burtu.









