Depp gefur sjúkrahúsi gjöf að andvirði 126 milljónir króna

Johnny Depp á frumsýningu myndarinnar Sweeney Todd. stækka

Johnny Depp á frumsýningu myndarinnar Sweeney Todd. Reuters

Johnny Depp hefur gefið barnasjúkrahúsi í London framlag að andvirði 126 milljónir króna fyrir að bjarga lífi dóttur sinnar.

Leikarinn heimsótti Great Ormond Street sjúkrahúsið með leynd í gær og afhendi upphæðina persónulega. 

Dóttir Johnnys Lily Rose, sem er átta ára, var lögð inn á Great Ormond Street í mars síðastliðnum eftir að nýru hennar fóru að bila.  Á sjúkrahúsinu fékk hún meðferð við eitrun af völdum E.coli.

„Þetta var það hræðilegasta sem ég hef upplifað.  Great Ormond sjúkrahúsið er frábært," sagði Johnny.

Í nóvember síðastliðnum eyddi Johnny fjórum tímum með börnum á sjúkrahúsinu og las sögur í gervi Jack Sparrows sjóræningja.

Hann bauð einnig fimm læknum af sjúkrahúsinu á frumsýningu nýjustu myndar sinnar, söngvamyndarinnar Sweeney Todd.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, Fræga fólkið - hægri dálkur — Fleiri fréttir

Phelps snýr aftur til Peking myndskeið

Phelps kemur til Peking á ný
13.1.2009 Sundkappinn Michael Phelps sem vann til átta gullverðlauna á Ólympíuleikunum í Peking í sumar sneri aftur til borgarinnar nýverið. Í þetta skiptið var það ekki til að keppa þó svo hann hafi eytt mestum tíma í sundlauginni. Meira »

Fergie og Duhamel gefin saman

Fergie söng með hljómsveitinni Black Eyed Peas.
11.1.2009 Tónlistarkonan Fergie og leikarinn Josh Duhamel voru gefin saman í Malibu í Kaliforníu í gærdag. Athöfnin þótti ævintýraleg en hún fór fram undir magnólíutrjám sem skreytt voru þúsundum hvítra rósa. Meira »

Sækir um skilnað frá Winehouse

Amy Winehouse
12.1.2009 Blake Fielder-Civil, eiginmaður söngkonunnar Amy Winehouse, hefur sótt um skilnað. Ástæðan er framhjáhald söngkonunnar óstýrilátu. Fielder-Civil og Winehouse gengu í hjónaband árið 2007. Hjónabandið hefur verið stormasamt og Fielder-Civil varði miklum hluta síðasta árs í fangelsi. Meira »

Sopranos-leikari dæmdur í fangelsi

Lillo Brancato
11.1.2009 Leikarinn Lillo Brancato sem er m.a. þekktur fyrir leik sinn í Sopranos-þáttunum var á föstudag dæmdur til 10 ára fangelsisvistar fyrir aðild sína að innbroti inn í íbúð í New York þar sem Brancato og félagi hans ætluðu að stela lyfjum. Lögreglumaður sem reyndi að stöðva innbrotið var skotinn til bana af félaga Brancato. Meira »

finnur.is