Veröld/Fólk
|
Fræga fólkið - hægri dálkur
| mbl
| 16.1.2008
| 8:54
| Uppfært
9:09
Leikarinn Brad Renfro látinn 25 ára
Bandaríski leikarinn Brad Renfro er látinn 25 ára gamall. Hann fannst meðvitundarlaus í íbúð í Los Angeles en sjúkraliðar úrskurðuðu hann látinn á staðnum.
Sagt er frá því á fréttavef BBC að dánarorsök hefur ekki verið gefin upp en Renfro hafði átt við áfengis og fíkniefnavandamál að stríða.
Renfro lék meðal annars í kvikmyndunum The Client, Sleepers og Bully. Hann byrjaði að leika í kvikmyndum 12 ára gamall þegar hann lék strákinn sem var aðalvitnið í spennumyndinni The Client sem gerð var eftir skálsögu John Grisham.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









