George Michael ritar ævisögu sína
George Michael mun skrifa ævisögu sín og kemur hún út í haust. IAN WALDIE
Söngvarinn George Michael hefur skrifað undir samning upp á miljónir punda um að skrifa ævisögu sína.
Útgefandinn HarperCollins tilkynnti að George muni skrifa bókin sjálfur án aðstoðar skuggaskrifara.
Bókin á að koma út í haust og að sögn útgefandans er þetta stærsti bókasamningur sem gerður hefur verið í Bretlandi.
Í fyrra var George dæmdur í 100 tíma samfélagsvinnu og missti hann ökuskírteinið í tvö ár eftir að hann játaði að hafa keyrt í óhæfu ástandi.
„George hefur lofað HarperCollins ævisögu sem dregur ekkert undan, og það er alveg öruggt að bókin verður þannig," sagði Andy Stevens, umboðsmaður George.
„Fólk er ekki vitlaust. Það er það farið að veita því athygli að sannleikurinn er áhugaverðari en sögurnar sem slúðurblöðin búa til," sagði Andrew Stevens.









