Chris Martin missti stjórn á skapi sínu

Chris Martin söngvari Coldplay.

Chris Martin söngvari Coldplay. AP

Chris Martin söngvari Coldplay ýtti ljósmyndara niður í götuna fyrir utan Mount Sinai sjúkrahúsið í New York.  Chris var þar með konu sinni Gwyneth Paltrow en orðrómur er um að hún eigi von á barni. 

Chris missti stjórn á skapi sínu þegar ljósmyndarinn kastaði á hann hamingjuóskum á leið hans út af sjúkrahúsinu og greip í hann. 

Chris ýtti ljósmyndaranum niður í gangstéttina áður en hann fór upp í bíl sinn og keyrði í burtu.

Farið var með Gwyneth í skyndi á sjúkrahús síðastliðinn mánudag en talsmaður hennar hefur ekki viljað gefa upp ástæður fyrir því en það sást til hjónanna á fæðingardeild sjúkrahússins.

Chris hefur áður reiðst ljósmyndurum en hann var handtekinn í Ástralíu árið 2003 en hann var sagður hafa ráðist að bíl ljósmyndara sem tók myndir af honum á á brimbretti á ströndinni.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Fræga fólkið - hægri dálkur — Fleiri fréttir

Phelps snýr aftur til Peking myndskeið

Phelps kemur til Peking á ný
13.1.2009 Sundkappinn Michael Phelps sem vann til átta gullverðlauna á Ólympíuleikunum í Peking í sumar sneri aftur til borgarinnar nýverið. Í þetta skiptið var það ekki til að keppa þó svo hann hafi eytt mestum tíma í sundlauginni. Meira »

Fergie og Duhamel gefin saman

Fergie söng með hljómsveitinni Black Eyed Peas.
11.1.2009 Tónlistarkonan Fergie og leikarinn Josh Duhamel voru gefin saman í Malibu í Kaliforníu í gærdag. Athöfnin þótti ævintýraleg en hún fór fram undir magnólíutrjám sem skreytt voru þúsundum hvítra rósa. Meira »

Sækir um skilnað frá Winehouse

Amy Winehouse
12.1.2009 Blake Fielder-Civil, eiginmaður söngkonunnar Amy Winehouse, hefur sótt um skilnað. Ástæðan er framhjáhald söngkonunnar óstýrilátu. Fielder-Civil og Winehouse gengu í hjónaband árið 2007. Hjónabandið hefur verið stormasamt og Fielder-Civil varði miklum hluta síðasta árs í fangelsi. Meira »

Sopranos-leikari dæmdur í fangelsi

Lillo Brancato
11.1.2009 Leikarinn Lillo Brancato sem er m.a. þekktur fyrir leik sinn í Sopranos-þáttunum var á föstudag dæmdur til 10 ára fangelsisvistar fyrir aðild sína að innbroti inn í íbúð í New York þar sem Brancato og félagi hans ætluðu að stela lyfjum. Lögreglumaður sem reyndi að stöðva innbrotið var skotinn til bana af félaga Brancato. Meira »

finnur.is