Angelina og Brad vilja ættleiða stúlku frá Afríku

Leikarahjónin Brad Pitt og Angelina Jolie.

Leikarahjónin Brad Pitt og Angelina Jolie. AP

Angelina Jolie og Brad Pitt hafa áform um að ættleiða aðra stúlku frá Afríku.  Þau ætla að heimsækja heimili fyrir munaðarlaus börn um páskana til þess að finna aðra stelpu en þau eiga fyrir tveggja ára dóttur sem þau ættleiddu frá Eþíópíu.

Haft er eftir James Haven, bróður Angelinu, að þau muni halda áfram að ættleiða eins lengi og þau geta. 

„Angie og Brad tala um hversu mikið börnin hafa kennt þeim.  Á margan hátt bjargaði Angie lífi Zahöru og það eru mörg börn sem hún gæti bjargað og hún er alltaf að tala um það,"sagði James við dagblaðið Daily Mirror.

Angeline hefur sagt frá því að hún vilji halda kynþáttajafnvægi í fjölskyldunni. 

 „Okkur finnst að við ættum að halda kynþáttjafnvægi, þannig að það sé annað barn frá Afríku fyrir Zahöru, eftir að við fengum annað barn frá Asíu fyrir Maddox.  Shiloh hefur okkur til þess að horfa á," var haft eftir Angelinu í fyrra.

Parið á þrjú ættleidd börn.  Maddox frá Kambódíu, Pax frá Víetnam og Zahöru frá Eþíópíu.  Einnig eiga þau Shiloh sem er þeirra eina líffræðilega barn.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, Fræga fólkið - hægri dálkur — Fleiri fréttir

Phelps snýr aftur til Peking myndskeið

Phelps kemur til Peking á ný
13.1.2009 Sundkappinn Michael Phelps sem vann til átta gullverðlauna á Ólympíuleikunum í Peking í sumar sneri aftur til borgarinnar nýverið. Í þetta skiptið var það ekki til að keppa þó svo hann hafi eytt mestum tíma í sundlauginni. Meira »

Fergie og Duhamel gefin saman

Fergie söng með hljómsveitinni Black Eyed Peas.
11.1.2009 Tónlistarkonan Fergie og leikarinn Josh Duhamel voru gefin saman í Malibu í Kaliforníu í gærdag. Athöfnin þótti ævintýraleg en hún fór fram undir magnólíutrjám sem skreytt voru þúsundum hvítra rósa. Meira »

Sækir um skilnað frá Winehouse

Amy Winehouse
12.1.2009 Blake Fielder-Civil, eiginmaður söngkonunnar Amy Winehouse, hefur sótt um skilnað. Ástæðan er framhjáhald söngkonunnar óstýrilátu. Fielder-Civil og Winehouse gengu í hjónaband árið 2007. Hjónabandið hefur verið stormasamt og Fielder-Civil varði miklum hluta síðasta árs í fangelsi. Meira »

Sopranos-leikari dæmdur í fangelsi

Lillo Brancato
11.1.2009 Leikarinn Lillo Brancato sem er m.a. þekktur fyrir leik sinn í Sopranos-þáttunum var á föstudag dæmdur til 10 ára fangelsisvistar fyrir aðild sína að innbroti inn í íbúð í New York þar sem Brancato og félagi hans ætluðu að stela lyfjum. Lögreglumaður sem reyndi að stöðva innbrotið var skotinn til bana af félaga Brancato. Meira »

finnur.is