Lohan og Murphy tilnefnd til flestra Razzie verðlauna
Lindsay Lohan og Eddie Murphy eru tilnefnd til flestra verðlauna á Razzie verðlaunahátíðinni sem haldin er í Los Angeles. Á hátíðinni eru veitt verðlaun fyrir verstu kvikmyndir ársins.
Spennutryllirinn I Know Who Killed Me með Lindsay í aðalhlutverki er tilnefnd til níu Razzie verðlauna og mynd Eddie´s Norbit til átta verðlauna.
Murphy fær sjálfur fimm tilnefningar, sem eru fleiri en nokkur einstaklingur hefur fengið á einu ári, en Murphy leikur þrjá karaktera í myndinni, sem fjallar um mann sem hittir draumakonuna á meðan hann er trúlofaður kvenskassi.
Sagt er frá því á fréttavef BBC að gæfa Murphys virðist hafa snúist við en aðeins er ár síðan hann var tilnefndur til óskarsverðlauna.
„Við ákváðum að hver einasti karakter sem hann lék í myndinni væri svo andstyggilegur að hann ætti skilið útnefningu fyrir hvern og einn," sagði stofnandi Razzie verðlaunanna John Wilson.
Lohan fékk sjálf tvær tilnefningar fyrir að leika tvo karaktera sem gætu verið sama manneskjan.
Lohan fékk fleiri atkvæði en nokkur leikari hefur fengið síðan Sofia Coppola lék í The Godfather 3 árið 1990. „I Know Who Killed Me er vitlausasta mynd sem hefur verið gerð á eftir Showgirlsen hún fékk Razzie verðlaun fyrir verstu kvikmynd tíunda áratugarins," sagði Wilson.
Aðrar tilnefningar til verstu myndar voru Bratz, Daddy Day Camp með Cuba Gooding Jr, og I now pronounce you Chuck and Larry með Adam Sandler í aðalhlutverki.
Adam Sandler og Cuba Gooding Jr. voru tilnefndir til verstu leikara ásamt Nicolas Cage í Ghost Rider og Jim Carrey í The Number 23.
Í flokki verstu leikkvenna voru tilnefndar allar leikkonur Bratz, Jessica Alba fyrir 3 myndir,Awake, Fantastic Four: Rise of the Silver Surfer og Good Luck Chuck. Diane Keaton var einnig tilnefnd fyrir Because I Said So.
Razzie útnefningarnar koma daginn áður en tilkynnt er um tilnefningar til Óskarsverðlauna.
Verðlaunin verða haldin þann 23. febrúar, daginn fyrir Óskarsverðlaunahátíðina.










