Valentino lætur af störfum
Ítalski fatahönnuðurinn Valentino og sýningarstúlkan Naomi Campbell. AP
Ítalski hönnuðurinn Valentino lætur af störfum í þessari viku eftir 45 ár í tískubransanum. Valentino hefur verið kallaður „kóngur rauða dregilsins."
Valentino, sem sagður er vera með fullkomnunaráráttu, er þekktur fyrir smekklega hátísku og síða rauða kjóla og hefur hann klætt kóngafólk, forsetafrúr, og kvikmyndastjörnur sem hrífast af fötum hans.
Áætlað er að hönnuðurinn afhjúpi svanasöng sinn í París á morgun.
Leikkonan Sophia Loren segist hafa blendnar tilfinningar til starfsloka hans og segir töfra Valentino´s vera „kvenlega, glæsilega og fallega hluti, hann er einn af þeim bestu."
Valentino fæddist á Ítalíu 1932 og eyddi táningsárum sínum í kvikmyndahúsum og dáðist að kvikmyndaleikkonum eins og Ritu Hayworth og Lönu Turner.
Hann lærði tískuhönnun í París og átti tímamót 1962 þegar tískusýning hans sló í gegn. Síðan hefur hann haldið vinældum sínum í heimi hátískunnar.









