„Við höfum viljað halda starfseminni sem hugsjón, það hefur haldið okkur gangandi,“ segir Kristján Björn Þórðarson, einn aðstandenda Kling & Bang gallerísins sem einnig stóð að Klink & Bank í Hampiðjuhúsinu.
Galleríið missti húsnæðið við Laugaveg í haust en opnar innan skamms á Hverfisgötu 42. Festar fasteignafélag, sem á húsið, hefur afhent Kling & Bang það til notkunar, leigulaust, í þrjú til fimm ár.