No Country for Old Men besta myndin

Daniel Day-Lewis og Julie Christie ræða saman baksviðs eftir að …
Daniel Day-Lewis og Julie Christie ræða saman baksviðs eftir að hafa tekið við Screen Actors Guild verðlaununum í gær. AP

Leikararnir Daniel Day-Lewis og Julie Christie hlutu í gærkvöldi Screen Actors Guild verðlaunin fyrir besta leik í aðalhlutverkum. Day-Lewis hlaut verðlaunin fyrir leik sinn í myndinni There Will Be Blood og tileinkaði hann verðlaun sín leikaranum Heath Ledger sem lést í síðustu viku. Þetta kemur fram á fréttavef BBC. 

Mynd Coen bræðra No Country for Old Men var valin besta myndin og þykir það benda til þess að hún verði einnig valin besta myndin á Óskarsverðlaunahátíðinni sem fram fer í næsta mánuði.

SAG verðlaunin eru fystu stóru verðlaun kvikmyndaiðnaðarins sem veitt eru við hátíðlega athöfn á þessu ári  en aðrar verðlaunaafhendingar hafa farið fram án viðhafnar vegna verkfalls handritshöfunda í Hollywood.

Spænski leikarinn Javier Bardem hlaut verðlaunin fyrir besta leik í aukahlutverki fyrir hlutverk sitt í No Country for Old Men. Sjónvarpsþáttaröðin The Sopranos var valin besti sjónvarpsþátturinn og aðalleikarar þáttanna James Gandolfini og Edie Falco voru valin bestu leikarar í aðalhlutverkum í sjónvarpsþáttum.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson