Endalok Potters erfiðari en hjónaskilnaður
J.K. Rowling, höfundur Harry Potter bókanna. ALESSIA PIERDOMENICO
J.K. Rowling höfundur bókanna um Harry Potter segir að erfiðara hafi verið að ljúka sögu Potters en að ganga í gegnum hjónaskilnað.
Rowling, sem skrifaði sjöundu og síðustu Harry Potter bókina í fyrra, var klökk þegar hún tók við verðlaunum fyrir framúrskarandi árangur í London.
„Þetta var versti skilnaður sem ég hef upplifað, mun verra en að skilja við nokkurn mann" sagði Rowling við áhorfendur á South Bank Show verðlaunahátíðinni.
„En það hefur líka verið yndislegt að draga andann og líta til baka og sjá hvað varð úr hugmynd sem ég fékk í lestarferð fyrir 17 árum," sagði Rowling.
Harry Potter bækurnar hafa selst í 350 milljónum eintaka um allan heim og hafa verið þýddar yfir á 65 tungumál.









