Mugison er staddur á Midem-hátíðinni í Cannes í Frakklandi. Með Mugison í för er faðir hans, Guðmundur M. Kristjánsson, hafnarstjóri Ísafjarðarbæjar, en þeir reka saman útgáfufyrirtækið Mugiboogie.
„Við höfum átt nokkra góða fundi með dreifingarfyrirtækjum en við erum að reyna að komast að hjá stóru fyrirtækjunum. Þetta snýst um endalaust plögg því hérna eru allir stóru karlarnir,“ er haft eftir Guðmundi á vestfirska fréttavefnum Bæjarins Besta.
Í gær spilaði Mugison í móttöku á íslenska básnum að viðstöddu fjölmenni en Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra var stödd þar meðal annarra.