Flugfreyjan furðulega

„Festið sætisólarnar og setjið Gucci og Prada handtöskurnar í farangurshólfið.“ stækka

„Festið sætisólarnar og setjið Gucci og Prada handtöskurnar í farangurshólfið.“

Morgunblaðið Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is

 „Ég hef aldrei komið til Íslands en ég hlakka mikið til að koma,“ sagði ástralska leikkonan Caroline Reid þar sem hún var stödd á Heathrow-flugvelli í Lundúnum í gær, á leið sinni til Íslands. Tilgangur heimsóknarinnar er að kynna flugfreyjuna Pam Ann fyrir Íslendingum, en hún er eins konar hliðarsjálf leikkonunnar. Um er að ræða tvær sýningar í Tjarnarbíói, í kvöld og annað kvöld.

„Pam Ann er flugfreyja sem er eins og klippt út úr sjöunda áratugnum,“ segir Reid um vinkonu sína. „Hún er kölluð af almenna farrýminu til þess að vinna á fyrsta farrými, og hefur engan áhuga á að fara til baka til almúgans. Hún er ansi óhefluð, og sumum finnst hún meira að segja svolítið óhugnanleg. Hún stríðir nefnilega fulltrúum mismunandi stétta sem koma um borð í flugvélina. En ég held að hún segi bara það sem alla áhafnarmeðlimi langar að segja við farþega, en þora ekki,“ útskýrir Reid sem hefur haft flugfreyjuna skrautlegu á herðunum í rúmlega tíu ár. Á þeim tíma hefur Pam Ann notið mikilla vinsælda og hefur Reid kynnt hana fyrir nokkuð stórum hluta heimsbyggðarinnar. „Ég er til dæmis nýkomin úr ferðalagi um Bretland og Bandaríkin, þannig að ég ferðast mikið.“

Aðspurð segir Reid að sýningin sé hvorki fyrir viðkvæma né óharðnaða einstaklinga. „Nei, guð minn góður, þú þarft eiginlega að vara fólk við. En ég hef að vísu heyrt að þið Íslendingar séuð nokkuð frjálslyndir, þannig að þetta er kannski allt í lagi,“ segir leikkonan hlæjandi.

Pam Ann hefur notið svo mikilla vinsælda að Reid vonast til þess að geta gert sjónvarpsþátt um hana.

„Það er reyndar ekkert ákveðið en við erum samt að vinna að einskonar umræðuþætti sem fer fram um borð í flugvél. Við vonumst til að geta komið þeim þætti í loftið á næstu árum.“

Pam Ann hefur samt sem áður komið fram í sjónvarpi nokkrum sinnum, til dæmis í Britain's Next Top Model-þáttunum sem sýndir hafa verið hér á landi.

Þá má einnig geta þess að flugfreyjan góða á sér aðdáendur úr hópi fræga fólksins. Sem dæmi má nefna að hún var fengin til þess að skemmta um borð í einkaþotu Eltons John. „Ég flaug með honum og vinum hans til Feneyja, ég var fengin til að skemmta um borð sem var virkilega gaman,“ segir Reid. Þá mun sjálf Madonna vera á meðal aðdáenda. „Já, mér skilst það, hún sagði víst að Pam Ann væri fyndin á mjög grimmdarlegan hátt sem mér finnst nokkuð vel að orði komist. Ég hef hins vegar ekki hugmynd um hvenær Madonna sá Pam Ann,“ segir Reid og hlær.

Þess má loks geta að sýningarnar eru í samvinnu við Flugfélag Íslands – nema hvað.  Pam Ann verður með uppistand í Tjarnarbíói í kvöld og annað kvöld. Báðar sýningar hefjast kl. 20. Miðaverð er 2.500 krónur og miðasala fer fram á midi.is.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir

Bæði jómfrú og trúlofuð

Noemi Letizia með mynd af ítalska forsætisráðherranum.
12.5.2009 Noemi Letizia, 18 ára gömul stúlka, sem komst í heimsfréttirnar fyrir skömmu þegar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, mætti í afmælið hennar, segist í viðhafnarviðtali í ítalska vikublaðinu Chi, bæði vera hrein mey og trúlofuð. Meira »

Texti í tímans straumi

Hallgrímur Helgason.
12.5.2009 Skáldsagan Rokland, eftir Hallgrím Helgason, er nú komin út á sænsku í þýðingu John Swedenmark. Gagnrýnandi blaðsins Dagens Nyheder fjallar um bókina í dag og fer um hana lofsamlegum orðum. Hann segir jafnframt, að bókin Draumalandið, eftir Andra Snæ Magnason, komi upp í hugann við lestur Roklands: báðar hafi bækurnar komið út í miðju íslenska góðærinu og hafi hvor með sínum hætti spáð fyrir um atburði síðasta hausts. Meira »

Peter Gabriel fær Polarverðlaunin

Peter Gabriel.
12.5.2009 Tilkynnt var í morgun, að tónlistarmennirnir Peter Gabriel og José Antonio Abreu hljóti sænsku Polarverðlaunin í ár. Um er að ræða tónlistarverðlaun, sem Stikkan Andersson stofnaði til árið 1989. Meira »

Trekkarar troðfylltu bíóhúsin

Leikararnir Chris Pine og Zachary Quinto í hlutverkum sínum í nýju Star Trek myndinni.
12.5.2009 Ævintýramyndin Star Trek var langmest sótta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina og jafnframt sú tekjuhæsta. Rétt tæplega 5.000 manns skelltu sér á myndina sem skilaði rúmum 4,5 milljónum í kassann. Meira »

finnur.is