Aniston sögð þjökuð af eftirsjá og trega

Jennifer Aniston með vinkonu sinni Courtney Cox.

Jennifer Aniston með vinkonu sinni Courtney Cox. AP

Leikkonan Jennifer Aniston er nú sögð í miklu uppnámi vegna sögusagna af því að fyrrum eiginmaður hennar Brad Pitt og sambýliskona hans Angelina Jolie eigi vona á barni en fyrir eiga þau eina dóttur og þrjú ættleidd börn. „Jennifer ber sig vel en hún er í miklu uppnámi,” segir ónefndur vinur hennar. „Hún var ekki undir það búin hversu mjög það sló hana út af laginu þegar hún sá myndir af Angelinu og kúlunni hennar. Það kom henni á óvart hversu mikil áhrif það hafði á hana að sjá enn eitt merki þess hversu mjög líf Brads hefur breyst miðað við hennar líf.” 

Annar ónefndur vinur Aniston segir hana syrgja það mjög að hafa ekki att barn með Pitt, sem hún var gift í fimm ár. „Jennifer þráir að eignast börn. Hún finnur líffræðilegu klukkuna tifa og óttast að hún hafi beðið of lengi. Hún segir oft að hún vildi óska að hún hefði eignast börn með Brad og að þá hefðu hlutirnir hugsanlega þróast á annan veg,” segir vinurinn í viðtali við breska tímaritið Star. 

 „Skilnaðurinn við Brad var að erfiðasta sem Jennifer hefur nokkru sinni gengið í gegn um en hún kemst vonandi yfir þetta síðasta bakslag. Hún er hörkutól.”
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir

Bæði jómfrú og trúlofuð

Noemi Letizia með mynd af ítalska forsætisráðherranum.
12.5.2009 Noemi Letizia, 18 ára gömul stúlka, sem komst í heimsfréttirnar fyrir skömmu þegar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, mætti í afmælið hennar, segist í viðhafnarviðtali í ítalska vikublaðinu Chi, bæði vera hrein mey og trúlofuð. Meira »

Texti í tímans straumi

Hallgrímur Helgason.
12.5.2009 Skáldsagan Rokland, eftir Hallgrím Helgason, er nú komin út á sænsku í þýðingu John Swedenmark. Gagnrýnandi blaðsins Dagens Nyheder fjallar um bókina í dag og fer um hana lofsamlegum orðum. Hann segir jafnframt, að bókin Draumalandið, eftir Andra Snæ Magnason, komi upp í hugann við lestur Roklands: báðar hafi bækurnar komið út í miðju íslenska góðærinu og hafi hvor með sínum hætti spáð fyrir um atburði síðasta hausts. Meira »

Peter Gabriel fær Polarverðlaunin

Peter Gabriel.
12.5.2009 Tilkynnt var í morgun, að tónlistarmennirnir Peter Gabriel og José Antonio Abreu hljóti sænsku Polarverðlaunin í ár. Um er að ræða tónlistarverðlaun, sem Stikkan Andersson stofnaði til árið 1989. Meira »

Trekkarar troðfylltu bíóhúsin

Leikararnir Chris Pine og Zachary Quinto í hlutverkum sínum í nýju Star Trek myndinni.
12.5.2009 Ævintýramyndin Star Trek var langmest sótta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina og jafnframt sú tekjuhæsta. Rétt tæplega 5.000 manns skelltu sér á myndina sem skilaði rúmum 4,5 milljónum í kassann. Meira »

finnur.is