Veröld/Fólk
|
1 Fólk - fréttir
| BANG ShowBiz
| 14.2.2008
| 11:54
Mikill viðbúnaður á sjúkrahúsi
Mikill öryggisviðbúnaður er á sjúkrahúsinu þar sem söng- og leikkonan Jennifer Lopez ætlar að fæða á. Starfsfólk á sjúkrahúsinu á Long Island í Bandaríkjunum tók allt þátt í æfingu á föstudag þar sem viðbúnaður við því ef barni er rænt var æfður. Þetta kemur fram á slúðurvefnum TMZ.com.
Lopez, sem á von á tvíburum með eiginmanni sínum Marc Anthony, á að eiga í dag ef marka má útreikninga lækna og samkvæmt vini Lopez er gert ráð fyrir því að öryggisviðbúnaður sjúkrahússins verði aukinn er hún kemur á sjúkrahúsið.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









