Veröld/Fólk
|
1 Fólk - fréttir
| Morgunblaðið
| 27.2.2008
| 5:30
| Uppfært
7:37
Bloom og Willis kela
Orlando Bloom. Reuters
Breski leikarinn Orlando Bloom svermir þessa dagana fyrir dóttur bandaríska leikarans Bruce Willis, Rumer. Rumer Willis er 19 ára en Bloom 31 árs.
Mun hafa sést til þeirra á keleríi í teiti tónilstarmannsins Prince að lokinni Óskarsverðlaunaafhendingu sunnudaginn síðastliðinn. Bloom sást fyrr í þessum mánuði kyssa undirfatafyrirsætuna Miröndu Kerr. Virðist Bloom því ekki við eina fjölina felldur.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









