Lítur á son sinn sem gjöf

Colin Farrel, með móður sinni, á Óskarsverðlaununum síðasta sunnudag stækka

Colin Farrel, með móður sinni, á Óskarsverðlaununum síðasta sunnudag Reuters

Írski leikarinn Colin Farrell hefur skýrt frá því að hann líti á son sinn sem „gjöf“. Farrell segir að hinn fjögra ára gamli James, sem er greindur með Angelmanheilkenni, sé eins hamingjusamur og hann geti verið og að allir gætu lært eitthvað af hans stórkostlega lífsmáta.

Colin, sem deilir forræði yfir James með fyrrverandi kærustu sinni Kim Bordenave, sagði í írska sjónvarpsþættinum Tubridy Tonight: „Hann er ekkert nema gjöf. Frá mínu sjónarhorni er hann nákvæmlega eins og hann ætti að vera. Þegar ég lít í kringum mig sé ég fólk með fullkomna hreyfigetu, sem hreyfir sig tignarlega, talar fallega og skýra ensku, en er samt ótrúlega óhamingjusamt - líka ég, stundum. Svo sér maður þennan dreng sem hreyfir sig ekki á þann hátt sem telst venjulegt og hann er eins hamingjusamur og hann getur verið.“

Hinn þrjátíu og eins árs gamli leikari ákvað að rjúfa þögn sína um sjúkdóm sonar síns á síðasta ári vegna þess að hann vildi ekki að fólk héldi að hann skammaðist sín fyrir ástand hans.

Angelmanheilkenni hrjá aðeins einn af hverjum 12.000 einstaklingum og valda talerfiðleikum, skertri hreyfigetu og jafnvægi.

 „Ég talaði ekki um son minn og mér fannst eins og ég væri að svíkja hann, líkt og það gæti orðið miskilið sem skömm, sem væri hræðilegt, vegna þess að hann er þvílíkt fagnaðarefni.“ Sagði Farrell.

Í öðru viðtali lýsti Colin því hvernig hann brást í grát þegar James byrjaði að ganga síðasta haust.

Hann sagði In Touch blaðinu: „James er einfaldlega fullkomin. Hann er frábær. Þegar hann tók fyrstu skrefin á síðasta ári, var tár á hverjum hvarmi á heimilinu. Ég er mjög lánsamur maður.“

 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, Fræga fólkið - hægri dálkur — Fleiri fréttir

Phelps snýr aftur til Peking myndskeið

Phelps kemur til Peking á ný
13.1.2009 Sundkappinn Michael Phelps sem vann til átta gullverðlauna á Ólympíuleikunum í Peking í sumar sneri aftur til borgarinnar nýverið. Í þetta skiptið var það ekki til að keppa þó svo hann hafi eytt mestum tíma í sundlauginni. Meira »

Fergie og Duhamel gefin saman

Fergie söng með hljómsveitinni Black Eyed Peas.
11.1.2009 Tónlistarkonan Fergie og leikarinn Josh Duhamel voru gefin saman í Malibu í Kaliforníu í gærdag. Athöfnin þótti ævintýraleg en hún fór fram undir magnólíutrjám sem skreytt voru þúsundum hvítra rósa. Meira »

Sækir um skilnað frá Winehouse

Amy Winehouse
12.1.2009 Blake Fielder-Civil, eiginmaður söngkonunnar Amy Winehouse, hefur sótt um skilnað. Ástæðan er framhjáhald söngkonunnar óstýrilátu. Fielder-Civil og Winehouse gengu í hjónaband árið 2007. Hjónabandið hefur verið stormasamt og Fielder-Civil varði miklum hluta síðasta árs í fangelsi. Meira »

Sopranos-leikari dæmdur í fangelsi

Lillo Brancato
11.1.2009 Leikarinn Lillo Brancato sem er m.a. þekktur fyrir leik sinn í Sopranos-þáttunum var á föstudag dæmdur til 10 ára fangelsisvistar fyrir aðild sína að innbroti inn í íbúð í New York þar sem Brancato og félagi hans ætluðu að stela lyfjum. Lögreglumaður sem reyndi að stöðva innbrotið var skotinn til bana af félaga Brancato. Meira »

finnur.is