Branson betri fyrirmynd en Jesú?

Richard Branson hefur vakið aðdáun fyrir atorku sína og hugmyndaauðgi

Richard Branson hefur vakið aðdáun fyrir atorku sína og hugmyndaauðgi Reuters

Auðkýfingurinn, frumkvöðullinn, ofurhuginn og ævintýramaðurinn Richard Branson er Bretum ofar í huga sem góð fyrirmynd fyrir börn en sjálfur Jesú. Þetta kemur fram í nýrri könnun.

Í könnuninni, sem sagt er frá á fréttavef Reuters, var fólk á ýmsum aldri spurt að því hverjir því þætti bestu fyrirmyndirnar fyrir ungmenni.

Í fyrsta sæti var fjölskyldan, en Branson náði svo öðru sætinu og þykir því betri fyrirmynd en Jesú, sem Bretum þykir þriðja besta fyrirmyndin.

Ungt fólk sér í lagi virðist hrifið af Branson en nærri helmingi fleiri á aldrinum 18 - 34 ára völdu Branson en þeir sem eru 55 ára og eldri. Alls nefndu 12%, rúmlega einn af hverjum tíu Branson.

Neðar á listanum eru svo kennarar og Nelson Mandela, Díana prinsessa og nakti heilsukokkurinn Jamie Oliver er sjöunda besta fyrirmyndin að mati Breta.

Á eftir Oliver nefndu Bretarnir  Winston Churchill, Martin Luther King og Bill Gates. Það vekur hins vegar athygli að dægurhetjur og knattspyrnumenn á borð við David Beckham komast hvergi í efstu sætin yfir bestu fyrirmyndirnar.

Mark Hodson, talsmaður fyrirtækisins Opinium, sem gerði könnunina segir niðurstöðurnar benda til þess að þótt Bretar séu haldnir þráhyggju fyrir frægðarfólki og fótbolta, þá horfi þeir frekar til frumkvöðla á borð við Branson og Jamie Oliver þegar kemur að því hvaða leið á að feta í lífinu.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir

Bæði jómfrú og trúlofuð

Noemi Letizia með mynd af ítalska forsætisráðherranum.
12.5.2009 Noemi Letizia, 18 ára gömul stúlka, sem komst í heimsfréttirnar fyrir skömmu þegar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, mætti í afmælið hennar, segist í viðhafnarviðtali í ítalska vikublaðinu Chi, bæði vera hrein mey og trúlofuð. Meira »

Texti í tímans straumi

Hallgrímur Helgason.
12.5.2009 Skáldsagan Rokland, eftir Hallgrím Helgason, er nú komin út á sænsku í þýðingu John Swedenmark. Gagnrýnandi blaðsins Dagens Nyheder fjallar um bókina í dag og fer um hana lofsamlegum orðum. Hann segir jafnframt, að bókin Draumalandið, eftir Andra Snæ Magnason, komi upp í hugann við lestur Roklands: báðar hafi bækurnar komið út í miðju íslenska góðærinu og hafi hvor með sínum hætti spáð fyrir um atburði síðasta hausts. Meira »

Peter Gabriel fær Polarverðlaunin

Peter Gabriel.
12.5.2009 Tilkynnt var í morgun, að tónlistarmennirnir Peter Gabriel og José Antonio Abreu hljóti sænsku Polarverðlaunin í ár. Um er að ræða tónlistarverðlaun, sem Stikkan Andersson stofnaði til árið 1989. Meira »

Trekkarar troðfylltu bíóhúsin

Leikararnir Chris Pine og Zachary Quinto í hlutverkum sínum í nýju Star Trek myndinni.
12.5.2009 Ævintýramyndin Star Trek var langmest sótta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina og jafnframt sú tekjuhæsta. Rétt tæplega 5.000 manns skelltu sér á myndina sem skilaði rúmum 4,5 milljónum í kassann. Meira »

finnur.is