Veröld/Fólk
|
1 Fólk - fréttir
| mbl
| 29.2.2008
| 14:53
Fyrirsæta fannst látin í Signu
Katoucha Niane, ein fyrsta þeldökka fyrirsætan sem öðlaðist heimsfrægð, fannst látin í París í gær en lík hennar fannst í ánni Signu. Niane hafði ekki sést frá 31. janúar en taska hennar fannst nálægt húsbáti á ánni.
Niane, sem var 47 ára og þriggja barna móðir, hafði verið ásamt nokkrum vinum í samkvæmi í París áður en hún hvarf. Lík hennar fannst síðan fyrir tilviljun í gær þar sem það hafði skorðast undir brú yfir Signu.
Parísarlögreglan segir, að allt bendi til þess að um slys hafi verið að ræða og Niane hafi fallið í ána og drukknað.
Niane fæddist í Gíneu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









